ENBóka samtal

Sissi ljósmyndari

Þegar myndin
þarf að segja meira.

Ég er Sissi, fyrirtækjaljósmyndari í Reykjavík. Ég tek stjórnendaportrett, starfsmannamyndir og persónulegar portrettmyndir.

Myndir fyrir vefinn, LinkedIn og kynningarefni sem sýna þig og þitt fólk á trúverðugan hátt.

Portrett af konu í ljósum jakka við speglandi glervegg
Ljósmyndari í Reykjavík · Verkefni um allt ÍslandÞjónusta

Fyrstu kynni skipta máli.

Áður en þú tekur í höndina á nýjum viðskiptavini hefur hann kannski þegar séð mynd af þér á vefnum, á LinkedIn eða í kynningu. Sú mynd getur mótað fyrstu kynni hans af þér.

Hvað viltu að myndin segi um þig?

Þjónusta

Ljósmyndun með tilgang.

Meira en góð mynd.

Góð ljósmyndun byrjar áður en myndavélin er tekin upp. Við skoðum hvað myndirnar eiga að segja, hvar þær verða notaðar og hvaða ímynd þú vilt skapa.

  1. Við tölum saman

    Við skilgreinum tilgang, notkun og þarfir.

  2. Við undirbúum

    Við veljum útlit, umhverfi og fatnað.

  3. Við myndum

    Ég leiðbeini þér í myndatökunni.

  4. Þú færð myndirnar

    Þú færð unnar myndir sem henta þínum þörfum.

Um Sissa

Ég er Sissi.

Ég hef starfað við atvinnu- og auglýsingaljósmyndun í yfir 20 ár. Ég hef sveinspróf og meistarabréf í ljósmyndun og reynslu af ljósmyndakennslu. Í myndatöku nota ég þá reynslu til að hjálpa fólki að finna sig fyrir framan myndavélina.

Ljósmyndari í Reykjavík · Verkefni um allt Ísland

Hvernig myndir vantar þig?

Persónuleg ímynd

Fyrir þig sem vilt meira en hefðbundna portrettmynd. Við vinnum með persónuleika, umhverfi og lýsingu og sköpum myndir með karakter sem endurspegla hver þú ert.

Allt að 50 mínútna myndataka
4 fullunnar myndir

Stjórnendaportrett

Vandaðar portrettmyndir fyrir stjórnendur, sérfræðinga og annað fagfólk. Fyrir þig sem þarft sterka aðalmynd og fjölbreytt myndefni fyrir fyrirtækjavefinn, LinkedIn, fjölmiðla og kynningar.

Allt að 90 mínútna myndataka
8 fullunnar myndir
Fjölbreyttar uppstillingar og myndsnið

Fyrirtæki og teymi

Samræmdar myndir af stjórnendum og starfsfólki, ásamt lifandi svipmyndum úr starfinu. Sterkt myndefni fyrir vefinn, kynningar og markaðsefni.

Allt að 3 klst. myndataka á vinnustaðnum
Miðað við allt að 6 manns sama daginn
2 fullunnar myndir af hverjum og einum
5 myndir úr daglegu lífi á vinnustaðnum

Ertu tilbúin(n) að sýna þig í réttu ljósi?

Segðu mér frá þér eða fyrirtækinu þínu. Við finnum saman hvernig hægt er að skapa myndir sem segja meira.

Ræðum myndatökuna

Hafa samband

Segðu mér frá verkefninu.

Segðu mér frá þér eða fyrirtækinu þínu. Við finnum saman hvernig hægt er að skapa myndir sem segja meira.

sissi@sissi.is

Ég nota upplýsingarnar til að svara þér og fylgja verkefninu eftir. Persónuvernd